Færsluflokkur: Spaugilegt

Svona í umræðunni um kvenbílstjóra

Svona í umræðunni um kvenbílstjóra, þá er þetta ágætt innlegg.

Kona ein var að steikja egg handa sínum heitt elskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið.

“Varlega varlega…!
…Settu meira smjör!
Guð hjálpi mér…!
………………………………Þú ert að steikja Of mörg egg í einu.
OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA…………!
Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður!
VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR!
Eggin munu festast!
Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar!
ALDREI!
Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð!
Ertu búin að tapa glórunni?
Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta.
…Nota salt. NOTA SALT! S A L T!!”

Konan horfði á hann og sagði: “Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?”

Eiginmaðurinn svaraði rólega, “Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum.”

Nonni 5 aur Strikes Again

Rússi,aemríkani og íslendingur hittust á kaffihúsi og voru að spjalla saman.
Allt í einu hrópaði rússinn: Þegar öll skipinn leggja samtímis úr höfn þá sést ekki í sjóinn. ÞÚ LÝGUR ÞVÍ segir Íslendingurinn. Rússinn: Ég segi það ekki kanski smá bil á milli þeirra. Þá segir amríkaninn: Þegar flugflotinn fer á loft þá sést ekki í himininn. ÞÚ LÝGUR ÞVÍ segir Íslendingurinn. Amríkaninn: Ég segi það ekki kanski smá bil á milli þeirra. Íslendingurinn brosti og svaraði um hæl, þegar ég tók hann vininn út um daginn þá settust tólf hrafnar á vininn. ÞÚ LÝGUR ÞVÍ sögðu rússinn og amrikaninn í kór. Ég segi það ekki kanski smá bil á milli þeirra :)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband