Færsluflokkur: Spaugilegt

Nonni 5 aur

Tveir eldri menn sitja á bekk þegar ferðalangur kemur gangandi til þeirra og spyr:

Do you speak English? Gömlu mennirnir hrista hausinn og yppa öxlum. Snakker I dansk, spyr þá ferðalangurinn og aftur hrista þeir hausinn. Parlez vous Francais spyr ferðalangurinn og enn hrista gömlu mennirnir hausinn. Ferðlangurinn gefst upp og gengur í burtu. Gömlu mennirnir sitja eftir og líta á hvorn annan, “maður hefði kannski átt að læra e-r erlend tungumál þegar maður var í skóla” sagði annar. Þá segir hinn: “Pifft til hvers, sérð nú bara þennan, talar 3 tungumál en tókst samt ekki að gera sig skiljanlegan…!”

Nonni 5 aur

1.      Ertu brjóstahaldaralaus í dag” ? spurði maðurinn.
”Jaaaá”, svaraði konan
”Þú ættir að gera það oftar”.
”Nú, finnst þér brjóstin á mér nógu stinn til þess” ?
”Nei, en þetta sléttir úr hrukkunum framan í þér”.

Laugardagshúmorinn

Mamman var í eldhúsinu að elda og hlusta á litla son sinn, 5 ára inni í stofu að leika sér með nýju rafmagnslestina sína.

Hún heyrir lestina stöðvast og sonur hennar segir: "Allir að drulla sér út ef þið ætlið út, því þetta er síðasta anskotans stoppistöðin í dag! Og allir drullusokkar sem ætla með, drulla sér inni í lestina, því við erum anskoti seinir í dag."

Mömmunni bregður auðvitað og fer og skammar strákinn: "Ég vil ekki hafa svona orðbragð í mínum húsum. Snáfaðu inn í herbergi og vertu þar. Ég skal kalla á þig þegar þú mátt koma fram aftur og þá ætlast ég til þess að þú notir ekki svona orðbragð."
...
Tveimur tímum seinna fær strákurinn að koma fram og byrjar aftur að leika sér með lestina.

Brátt er leikurinn kominn aftur á fullt og lestin stöðvast. Mamman heyrir strákinn segja: "Góðir farþegar, munið að taka allt dótið ykkar með þegar þið farið út. Við þökkum fyrir okkur og vonandi komið þið fljótt aftur."

Hún heyrir litlu elskuna sína halda áfram: "Þeir sem eru að koma um borð, munið, það er bannað að reykja í lestinni. Við vonum að ykkur líði vel í ferðinni í dag."

Þegar mamma hans var að byrja að brosa, bætir hann við: "Og þið ykkar sem eruð fúl yfir tveggja tíma seinkunni, talið við beljuna inni í eldhúsi..."

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband