Ég horfði gagnrýnum augum á konuna

Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár ogsagði:   Heyrðu elskan – fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum  á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju  kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.

    Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og  50 tommu flatskjá – en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið  með þreyttri 55 ára konu.  Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér !

    Ég verð að játa að ég á skynsama konu :  Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:    Ekki vandamálið :  Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu !  Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp !  –  eftir þessi 30 ár, veistu að ég meina það sem ég segi.       

Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki !!!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hannes

Henda bara kellingatruntunni út og kaupa 16fm herbergi handa henni og gefa henni 2miljónir til að koma sér fyrir og fá sér svo eina 25ára.

Hannes, 20.3.2009 kl. 01:22

2 Smámynd: Marilyn

En tókuð þið eftir því hvernig eignarhaldið breyttist úr "áttum við" í "núna á ÉG" - karlrembudjöfull ;)

Marilyn, 20.3.2009 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband