Maður nokkur

Maður nokkur var í leigubíl og pikkar í öxlina á bílstjóranum til þess að spyrja hann spurningar.
Leigubílstjórinn öskrar upp yfir sig, missir stjórn á bílnum, næstum því búinn að keyra í veg fyrir strætó, fer upp á gangstétt og stoppar örfáum sentímetrum frá búðarglugga.
Í nokkrar sekúndur er allt hljótt í bílnum. Síðan segir bílstjórinn: "Heyrðu félagi, þetta skaltu aldrei gera aftur. Þú hræddir næstum úr mér líftóruna!"
Farþeganum er illa brugðið en segir að lokum: "Fyrirgefðu ég vissi ekki að smá pikk í öxlina myndi valda þessum viðbrögðum.."
"Æj, fyrirgefðu segir bílstjórinn, þetta er nú reyndar ekki þín sök.
Í dag er fyrsti dagurinn minn sem leigubílstjóri, ég er búinn að vera að keyra líkbíl í 25 ár"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband