Írabrandari

Íri sem hafði verið strand á eyðieyju í meira en 10 ár lenti svo í því einn daginn að hann sá eitthvað reka að landi rétt úti við sjóndeildarhringinn.
Hann hugsaði með sjálfum sér: "Þetta er örugglega ekki skip." og eftir því sem fyrirbærið kom nær og nær þá byrjaði hann að útiloka möguleikann á það þetta gæti verið lítill bátur eða fleki.
Skyndilega birtist vera klædd svörtum blautbúningi úr briminu. Þegar.
veran hafði lagt frá sér köfunargræurnar og tekið hettuna á blautbúningnum niður sá hann að þetta var glæsilegasta ljóska sem hann hafði á ævinni séð!

Glæsilega ljóska gekk upp að Íranum sem nú var alveg orðlaus og sagði við
hann: " Jæja, segðu mér, hversu langt er síðan þú fékkst þér sígarettu?"
"Tíu ár," svaraði Írinn hissa. Og með það sama þá opnaði ljóskan vatnsheldan vasa á vinstri erminni á blautbúningnum og náði í skraufaþurran pakka af sígarettum. Hann fær sér eina, kveikir á henni og tekur góðan smók. "Góður guð" sagði hann, "þetta er svo gott... ég var næstum búinn að gleyma hvað það var gott að fá sér að reykja!" "Og hvað er langt síðan þú fékkst þér gott írsk viskýtár?" Spurði blondína. Titrandi svaraðið strandaglópurinn, "tíu ár".

Þegar hún heyrði það, þá teygði blondínan sig í hægri ermina og opnaði vasa þar og dró upp flösku og rétti honum. Hann opnar flöskuna og fékk sér gúlsopa. "Þvílíkar guðaveigar!" sagði hann. "Þetta er algjört kraftaverk!!!"
Þegar hér var komið við sögu byrjaði glæsilega ljóskan að renna hægt og rólega niður blautbúningnum... niður að mitti.

Hún leit titrandi á manninn og spurði, " og svo... hversu langt er síðan þú hefur "leikið" þér aðeins???" Með tár í augunum, féll Írinn niður á hné og snökti... "Jesús Kristur... ekki segja mér að þú sért með golfkylfur þarna líka!"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Assgoti góður hahahihi

Guðný Einarsdóttir, 15.10.2008 kl. 22:39

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha búinn að vera aaaaðeins of lengi í einangruninni grey kallinn

Jóna Á. Gísladóttir, 15.10.2008 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband