16.4.2008 | 14:14
Óskirnar þrjár
Einu sinni var góðhjörtuð stúlka, sem var svo ófríð, að hún þorði varla út á götu nema að næturlagi. Hún hírðist með kettinum sínum í ósamþykktri kjallaraíbúð við Hverfisgötuna, og grét örlög sín og vonsku heimsins.
Eina nóttina, þegar hún var á gangi meðfram Sæbrautinni, mætti hún þorski, sem lá spriklandi og hjálparvana á göngustígnum. Nú var stúlkan bæði góðhjörtuð og mátti ekkert aumt sjá sem og heiðarleg, og þar sem hún átti engan kvóta, þá sá hún, að hún yrði að koma þorskinum aftur lifandi í sjóinn. Hún klöngraðist með hann niður grjótgarðinn og lagði varlega í vatnið.
Þá tók þorskurinn til máls: "Blúbb, blúbb, blúbb, þetta var nú fallegt af þér, nú skal ég veita þér þrjár óskir."
Stúlkan var vel gefin og áttaði sig strax á tækifærunum, sem fólust í þessu tilboði.
"Til að byrja með vil ég Vera geðveikt falleg og vel vaxin."
"Blúbb, blúbb, blúbb," sagði fiskurinn og viti menn - stúlkan varð falleg og íturvaxin eins og ugga væri veifað.
"Svo vil ég að ósamþykkta kjallaraholan mín breytist í lúxus-penthás íbúð í Skuggahverfi með útsýni Allan hringinn.
"Blúbb, blúbb, blúbb," sagði þorskurinn, og glænýtt háhýsi reis upp í brekkunni fyrir ofan, með samþykktri deiliskipulagsbreytingu og öllu tilheyrandi.
"Að lokum vil ég að kötturinn minn breytist í fallegasta prins, sem nokkurn tíma hefur verið til.
"Blúbb, blúbb, blúbb," sagði þorskurinn. "Farðu nú og líttu á nýja heimilið þitt."
Stúlkan fór nú upp í nýja háhýsið, kom inn í nýju útsýnis-penthásíbúðina sína og mætti þar prinsinum sínum. Þorskurinn hafði nú heldur betur staðið sig vel! Ekki nóg með að þetta var glæsilegasti karlmaður, sem hún hafði nokkru sinni séð, heldur var hann búinn að leggja á borð, opna dýrindis vínflösku og bar nú fram ilmandi fiskrétt beint úr ofninum.
Að lokinni rómantískri máltíð með útsýni yfir sundin, bar prinsinn stúlkuna inn í svefnherbergi og lagði hana á rúmið.
Hann lagðist svo við hliðina á henni og hún titraði af eftirvæntingu. En í stað þess að byrja að láta vel að henni, hringaði hann sig, lokaði augunum og virtist ætla að fara að sofa.
"Hvað er...," hvíslaði stúlkan. "Ætlarðu ekki að..... Eigum við ekki að......"
"... Gera eitthvað ljúft og skemmtilegt?" sagði prinsinn. "Við hefðum sko heldur betur getað gert það - ef þú hefðir ekki látið gelda mig í fyrra
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Nýjustu færslur
- The New Romantic (2018) | Official Trailer
- Ralph Breaks the Internet Trailer #2 (2018)
- GusGus - Don't Know How To Love (Official Video)
- Er Climax La la Land on Acid?
- 'You'll Love It' - Kanye West/Lil Pump Parody
- Marvels Daredevil: Season 3 | Date Announcement [HD] | Netflix
- THE SUPER Official Trailer (2018) Val Kilmer,
- THE GIRL IN THE SPIDER'S WEB - Official Trailer 2
- Marvel Studios' Captain Marvel - Official Trailer
- The Haunting of Hill House | Official Trailer [HD] | Netflix
- STAN & OLLIE Official Trailer (2018) Laurel And Hardy Movie
- Method Man - Take the Heat ft. Dr. Dre
- THE BALLAD OF BUSTER SCRUGGS Official Trailer (2018) James Fr...
- Marvels Daredevil: Season 3 | Teaser: Confessional
- SHAZAM "Superpowers" TV Spot Trailer (2018) DCEU
Athugasemdir
Átsj!!!! Aumingjans stúlkan - she can't catch a break!!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 15:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.