3.4.2008 | 18:10
Einu sinni voru tvær nunnur á gangi í gegnum skóginn.
Einu sinni voru tvær nunnur á gangi í gegnum skóginn.Önnur þeirra gekk undir viðurnefninu Systir Stærðfræði (SS), En hin var kunn undir viðurnefninu Systir Rökrétt (SR).Það var farið að dimma og þær áttu ennþá langt eftir á áfangastað.SS: Hefurðu veitt því athygli að síðustu 38 og hálfa mínútu hefur okkur verið veitt eftirför af einhverjum manni? Ég velti því fyrir mér hvað hann ætli sér. SR: Það liggur ljóst fyrir að hann ætlar sér að gera okkur eitthvað. SS: Almáttugur minn! á þessum tímapunkti mun hann ná okkur innan 15 mínútna hið minnsta! Hvað getum við gert? SR: Það eina rökrétta í stöðunni er auðvitað að labba hraðar. Stuttu síðar:SS: Það er ekki að ganga upp. SR: Auðvitað er það ekki að ganga upp. Maðurinn gerði það eina rökrétta í stöðunni. Hann fór líka að labba hraðar. SS: Hvað eigum við þá að gera? Á þessari stundu mun hann ná okkur innan einnar mínútu. SR: Það eina rökrétta í stöðunni fyrir okkur er að fara sitt í hvora áttina. Þú ferð þessa leið og ég tek hina leiðina. Þá getur hann ekki elt okkur báðar. Því næst ákvað maðurinn að elta Systur Rökréttu. Systir Stærðfræði komst á áfangastað heilu á höldnu en hafði áhyggjur af því hvernig Systur Rökrétt hefði reitt af. Eftir nokkra mæðu kemur Systir Rökrétt loks á áfangastað.SS: Systir Rökrétt ! Guði sé lof að þú sért komin! Hvað gerðist? SR : Þar sem maðurinn gat eðlilega ekki elt okkur báðar, þá valdi hann þann möguleika að elta mig. SS: Já, Já! En hvað gerðist svo? SR: Nú ég reyndi að hlaupa eins hratt og ég gat, en þá fór hann einnig að hlaupa eins hratt og hann mögulega gat. SS: Og? SR: Það eina rökrétta gerðist á þessum tímapunkti. Hann náði mér. SS: Guð minn góður! Og hvað gerðir þú? SR: Það eina rökrétta sem ég gat gert og gerði.. Ég lyfti pilsi mínu upp. SS: Oh, vesalings Systir! Hvað gerði maðurinn? SR: Það eina rökrétta fyrir hann í stöðunni. Hann gyrti niður um sig. SS: Æii, nei!! Hvað gerðist svo? SR : Liggur það ekki í augum uppi, Systir? Nunna með pilsið upp um sig hleypur hraðar en maður með buxurnar á hælunum.Og fyrir ykkur sem hélduð að þetta yrði eitthvað dónalegt og svæsið, bið ég fyrir ykkur !
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Nýjustu færslur
- The New Romantic (2018) | Official Trailer
- Ralph Breaks the Internet Trailer #2 (2018)
- GusGus - Don't Know How To Love (Official Video)
- Er Climax La la Land on Acid?
- 'You'll Love It' - Kanye West/Lil Pump Parody
- Marvels Daredevil: Season 3 | Date Announcement [HD] | Netflix
- THE SUPER Official Trailer (2018) Val Kilmer,
- THE GIRL IN THE SPIDER'S WEB - Official Trailer 2
- Marvel Studios' Captain Marvel - Official Trailer
- The Haunting of Hill House | Official Trailer [HD] | Netflix
- STAN & OLLIE Official Trailer (2018) Laurel And Hardy Movie
- Method Man - Take the Heat ft. Dr. Dre
- THE BALLAD OF BUSTER SCRUGGS Official Trailer (2018) James Fr...
- Marvels Daredevil: Season 3 | Teaser: Confessional
- SHAZAM "Superpowers" TV Spot Trailer (2018) DCEU
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.