Þegar konur eldast

Þegar konur eldast

Grein eftir Hjört Jónsson

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldastverður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þærvoru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumarkonur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.. Ég heiti Hjörtur. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þettaástand varðandi konuna mína ? hana Hrönn. Þegar ég settist í helgan steinfyrir nokkrum árum, þurfti Hrönn auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðframhlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaðiokkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftirað aldurinn fór að sjást á henni. Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni.Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig íhálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinnsegi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegarmaturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í"Heiðursmannagrillinu" í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert ádagskránni að fara út að borða. Áður fyrr var Hrönn vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Núer hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geriþað sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnirþvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem þaðvirðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa. Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur húnþví fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana ímatartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu,svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessuá tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minnihana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi( þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínumbetri kostum. Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleirihvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungishálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég ersanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðumköldum appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að geraþetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni. Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig égstyð hana Hrönn mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona miklatillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst þaðalveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verðaþegar þær eldast.  En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari ogminna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast ? lít ég svo á að þettahafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að viðfæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.

 Kveðja,Hjörtur Jónsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

 Muhahahaha
Ógó fyndið...

Hulla Dan, 20.2.2008 kl. 17:56

2 identicon

Ég hef ekki þessa þolinmæði ... no way!!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband