Blond

Mig bráðvantaði nokkurra daga frí í vinnunni en ég þóttist vita að
stjórinn myndi ekki taka það í mál. Þá datt mér í hug að hugsanlega
myndi hann leyfa mér það ef ég hegðaði mér eins og geðbilaður maður.
Svo að ég brá á það ráð að hanga öfugur í loftinu og gefa frá mér
furðuleg hljóð. Samstarfskona mín - sem er ljóska - spurði mig hvað ég
væri að gera. Ég sagði henni að ég ætlaði að þykjast vera ljósapera
svo að stjóri héldi að ég væri kexruglaður og gæfi mér nokkurra daga
leyfi.
Skömmu síðar birtist stjóri á skrifstofunni og sagði við mig:
"Drottinn minn, hvað ertu að gera?" Ég sagði honum að ég væri ljósapera.
Hann sagði: "Þú ert yfir þig stressaður, það fer ekki á milli mála.
Farðu heim og vertu þar í nokkra daga og reyndu að ná þér." Ég stökk
niður og gekk út úr skrifstofunni.
Þegar samstarfskona mín (ljóskan) elti mig spurði stjóri hana hvert
hún væri eiginlega að fara. Hún sagði: "Ég er líka farin heim. Þú
getur hreinlega ekki ætlast til þess af mér að ég vinni í þessu myrkri!"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband