Kæri Póstur!

Kæri Póstur!

Mig vantar svar við vandamáli, en þannig er að konan mín vinnur oft lengur en
hún þarf, og kemur heim seint og angar þá af rakspíra. Hún brjálast ef ég
skoða gsm inn hennar og fær oft dularfull símtöl í heimsaímann sem hún neitar a
segja frá.  Hún er stundum úti á kvöldin og er þá keyrð heim af ókunnum vini.

Einu sinni ætlaði ég að njósna og gá hver þessi óþekkti maður væri, svo rétt
aður en hún kom heim, læddist ég út og faldi mig bak við mótorhjólið
mitt.  Þá sá ég olíuleka á hjólinu.  Og nú spyr ég, kæri póstur, er eðlilegt að það komi
leki á hjól sem er aðeins búið að keyra um 20.000 km.?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

He, he he. Hafði hann aldrei skipt um síu?? 

Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband