ho ho

Nemandi úr Samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í
Kaupfélagi úti á landi.
Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli
himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann væri
ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði manninum
að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og athuga
hvernig
hefði gengið. Kvöldið eftir spurði hann unga manninn hvað hafði hann
afgreitt
marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. 'Bara einn,' sagði drengurinn. Þetta
fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en spurði hvað hann hefði selt fyrir
mikið.

"Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund"
sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann.

"Hvað seldirðu honum eiginlega, spurði kaupfélagsstjórinn hissa?

"Jú, sjáðu til" sagði drengurinn, "fyrst seldi ég honum lítinn
öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo
veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist
ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi
honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann
gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í
véladeildina
og seldi honum nýjan Landróver."

Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði:
"Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú
selur honum bæði bát og bíl"!!

"Nei, nei," sagði strákurinn.

"Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði
við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott
fyrir hann að fara að veiða!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahahaha góður þessi.

Bryndís R (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband