So What U Gonna Do !

Jæja það er skondið að fara með drenginn minn í Kringluna í bíó já eða bara semsagt á opinbera staði þar sem fæstir þekkja okkur eða til okkar hehe.

Til dæmis í Kringlunni eftir Bee Movie sem við reyndar sáum með Íslensku tali , þá í rúllustiganum á leið í verslun heyrist í Inga þór , hey pabbi (engin kippti sér upp við það þó þau orð séu töluð hátt og snjallt ) , I Guess I Have To Go To The Bathroom  með svona hreim og alles og jú ALLIR snúa sér að okkur og glápa.

Ingi Þór er að spila Simpsons The Game og eitthvað slangur er sagt og hann étur allt upp á ensku með stíl og ég segi Ingi Minn tala íslensku er það ekki !!!,  Ingi setur á pásu og lítur á mig og segir svo  What U gonna Do ?  , ég orðlaus enda drengurinn farinn að koma með einhverja Sopranos setningar á mig ?.

En bíoferð kvöldsins sló allt út en þá var bekkjarferð á Golden Compass og hann villdi ólmur fara sem kom mér á óvart vegna þess að öllu jafna vill hann sjá svona myndir heima á DVD því hann þolir hávæðan illa og bregður alveg svakalega í atriðum þar sem mikill hávæði er.

Ég sem fyrirmyndaföður ætti að gera , segi ekkert mál þá bara förum við og kaupum þetta vanalega popp og kók, svo  komum við okkur vel fyrir og myndin byrja og eftir 10 mínutur kemur þetta litla bregðuatrið og allur salurinn kippist við og stúlkurnar öskra en Ingi Þór brá svo mikið að hann baðaði út höndunum sem varð til þess að það hreinlega snjóaði poppi yfir mig allan saman , nú eftir að hafa tekið eftir því að lítið var orðið í popp pokanum sínum spurði hann mig hvort ég vildi nú ekki bara skipta á pokum sem ég og gerði enda nóg af poppi í hárinu mínu og fötum hingað og þangað , ekki batnaði ástandið þegar eftir korter kom annað bregðuatrið og Ingi hélt þá á kókglasinu , ég er enn að reyna hreinsa kókið af gleraugunum mínum en eftir þetta var hann orðinn frekar sjóvaður í látum myndarinnar og eftir popp og kók í orðins fyllstu merkingu þá var þessi ferð okkar feðga alveg ágæt CryingPinchGrin

Svo var haldið í veislu á Macdonalds og nokkrir handakrikasteiktir borgarar látnir hverfa ofan í mistóra magana.

pleisið skoðað af litla stóra mann og svo rennt heim á leið eftir viðburðaríkan dag.

Stígvél sett úti gluggan , bara svona just in case pabbi minn Tounge sagði Ingi

Jamm það verður nóg að gera hjá sveinka í nótt og þær nætur fram að jólum ef að líkum lætur hjá ansi mörgum ,

Lokaorð kvöldsins gera popp og kók sullið alt saman bærilegra og vel það þegar Ingi segir  DAD You Are The Best Dad in the Whole wide World

svo fylgir að Bart Simpson hafi sagt þetta við Simpson pabba sinn í þætti númer 22 í seríu nr 7

So What U Gonna Do

HPIM2396

Það er leikur já já pabbi er að læra ....

HPIM2404

U R A Funny Guy !!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Will do

Ómar Ingi, 13.12.2007 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband