Einn fyrir Feminista

Hjón í sumarfríi fóru í bústað á Þingvallavatni. Eiginmanninum fannst
best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun
snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að
leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á
bátnum og sigla út á vatnið. Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið,
setur út akkerið og kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók. Stuttu sienna
kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú, hvað
ert þú að gera?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með
sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir
vörðurinn. "Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún.
"Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú
farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti
gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir
nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn
forviða. "Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú
byrjir eftir skamma stund". "Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og
sigldi á brott.

Boðskapur sögunnar: Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að
hún geti líka hugsað !!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ógissssssssssslega góður

Jóna Á. Gísladóttir, 29.11.2007 kl. 12:47

2 identicon

Já, þær kunna margar hverjar að svara almennilega fyrir sig.

Góður boðskapur - góður djóku! - ... Veiga les mikið og því hef ég reynt að rífast ekki við hana - gott að hafa þetta til hliðsjónar

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 14:06

3 Smámynd: Ómar Ingi

Thi hihihihi

Ómar Ingi, 29.11.2007 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband