Gjöfin !

 

Ungur maður ætlaði að gleðja kærustuna sína á afmælisdaginn hennar,  þau höfðu ekki verið lengi saman og eftir dágóða umhugsun þá ákvað hann að kaupa handa henni loðfóðraðar lúffur það væri rómantísk gjöf en ekki of persónuleg. Hann fór í bæinn með yngri systur kærustunnar og hún hjálpaði honum að velja lúffurnar, sjálf keypti systirin sér nærbuxur.

Afgreiðslukonan ruglaði saman pökkunum þegar hún pakkaði hlutunum inn og ungi maðurinn sendi óvart nærbuxurnar til kærustunnar án þess að vita af því. Hann skrifaði hjartnæmt bréf til hennar sem hann lét fylgja pakkanum og að sjálfsögðu ætlaðist hann til þess að hún læsi bréfið áður en að hún tæki utan af gjöfinni. Bréfið var svohljóðandi: Ég valdi þessa gjöf vegnað þess að þú ert vanalega ekki í svona þegar við förum saman út á kvöldin. Ég hefði valið aðeins lengri ef systir þín hefði ekki verið með mér,en hún er alltaf í svo litlum sem erfiðara er að fara úr... Liturinn er dáldið viðkvæmur, en afgreiðslukonan sýndi mér sitt eintak sem hún hafði verið í 3 vikur samfleytt án þess að sæist á þeim, ég bað hana að máta eintakið þitt og hún var virkilega sæt. Ég vildi óska að ég fengi að klæða þig í gjöfina í fyrsta skipti vegna þess að ég er viss um að aðrar hendur  munu snerta hana áður en að ég fæ tækifæri til að hitta þig. Þegar þú ferð úr mundu þá að blása í þæráður en þú leggur þær frá þér vegna þess að þær verða yfirleitt dáldið rakar... Ímyndaðu þér bara hve oft ég á eftir að kyssa gjöfina á næstu mánuðum, ég vona að þú verðir í þeim á laugardagskvöldið...

 

Ástarkveðja.

 

p.s. Nýjasta tískan er að bretta aðeins upp á þær og láta þetta loðna sjást!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband