Góður

Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes til að halda uppá það að
konan hans fór frá honum. Fór svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og
sjá  aðra. Topp lúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur sem
ennþá  prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn
sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.
Hmrmff... þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens og hann gaf í... og gaf aftur
í

Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig "Hvað er eiginlega
að  mér?" ..hægði á og keyrði út í vegarkantinn.
Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn: "Þetta
hefur verið langur vinnudagur" sagði hann "ég er að ljúka vaktinni og það
er  föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga
á  yfirvinnu, - ég gef þér séns. Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir
þessum ofsahraða sem þú fórst á ,betri en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt
ég þig sleppa í þetta sinn"
Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks: "Kellingin stakk af
fyrir  nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var, skal ég segja þér, svo
hræddur um  að þú værir að skila henni"

"Góða helgi" sagði löggan

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband