Slys eða líkamsárás

http://www.drengsson.net/5tindar/nonni.html

Ég fór á þennann umrædda leik á móti HK og tók hann upp á myndband eins og ég hef verið að gera undanfarið. Leikurinn var ekkert sérstakur og því ákvað ég að sleppa að klippa saman myndefnið frá honum, heldur eiga inni hin ýmsu skot sem eru þar markverð.

En það sem kom mér svo til að kíkja á leikinn var umrætt nefbrot Nonna. Ég sá ekki mikið athugavert þegar þetta átti sér stað enda var ég að fylgjast með öðru (stelpunum). Í hálfleik komu að mér mætir menn og spurðust fyrir um hvort ég hefði náð þessu á bandið. Ég taldi mig hafa gert það. Í gærkvöldi þegar ég frétti að Nonni hefði nefbrotnað við þessi læti í HK-inginum, og það að Nonni var ekki eitt sáttur við mótherjan, þá ákvað ég að kíkja á þetta.

Eins og þið munið sjá þá er ekki um slys að ræða, eða hvað? HK-ingurinn gefur Nonna einfaldlega bylmingsfast vinstrihandar olnbogaskot í andlitið. Þegar þetta gerist þá er HK-ingurinn að seilast í boltan með hægri höndinni og er þessi hreyfing vinstri handar með aðeins eitt markmið í huga, og það markmið er hvorki HK-inginum né íþróttinni til sóma, eða hvað fynnst ykkur?

En þetta er mitt mat á atburðinum eftir að hafa getað séð í HDV (HD þýðir háupplausn, ekki háskerpa eins og sumir eru reglulega að halda fram) upplausn en því miður fáið þið bara að sjá þetta í litlum Flash-netgæðum.

Þessi skrif tengjast ekki stjórn Fram heldur eru þetta einungis mínar eigin hugsanir enda er ég bara áhorfandi og stuðningsmaður Fram.

Stefán Drengsson (B.A.)

TEKIÐ AF FRAM.IS  

Þessu á að taka á af hálfu KSÍ eftir að svona sést og banna þessum viðbjóði í HK að koma ínná handboltavöll að minnsta kosti á þessu ári og hana nú KROSSINN X122.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er virkilega ljótt að sjá! ... Ég vona svo sannarlega að HSÍ taki á þessu máli!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband