Djókur

Bimba vaknaði um miðja nótt og áttaði sig á því að eiginmaðurinn
    var ekki í rúminu. Hún smeygði sér í náttkjólinn og fór niður.
Sat þá  ekki maðurinn við eldhúsborðið og húkti yfir ísköldum
kaffibolla.
    Hann virtist annars hugar og starði tómeygður á vegginn.
    Bimba sá hann þurrka tár af kinnunum og súpa á kaffinu.
    - "Hvað er að ástin mín?
    Af hverju siturðu hér einn um miðja nótt, spurði hún.
    Addi leit upp og sagði:
    "Manstu þegar við vorum að hittast á laun fyrir 20 árum, aðeins
16 ára gömul.
    " - "Já, ég man vel eftir því," sagði Bimba. -
    "Manstu þegar pabbi þinn kom að okkur þar sem við vorum að
elskast í aftursætinu í bílnum mínum?" -
    "Já, ég man líka vel eftir því." -
    "Manstu þegar pabbi þinn dró upp byssuna, beindi henni að höfðinu
á mér og sagði:
    Annað hvort giftistu dóttur minni eða verður næstu 20 árin í
    fangelsi." - "Já, ég man vel eftir þessu elskan mín," sagði Bimba
og  settist við hlið eiginmannsins.

    Hann þurrkaði tár af hvörmunum og sagði: "Veistu... ég
    hefði losnað út í dag!"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 nú hefur þessi kona farið með þessa bæn hér:

  http://jonaa.blog.is/blog/jonaa/entry/303784/

Jóna Á. Gísladóttir, 5.9.2007 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband