13.7.2007 | 13:34
Góð saga
Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og
taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju rúminu
og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent
bréfið sem í því var.
Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að
þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri
þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að
undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur
þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En
það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til
hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það.
Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn
að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann
er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum
og ég er svo innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það
að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg
af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta
á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn
finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo
skilið!! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú
orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn
orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern
daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin
þín.
Þín dóttir Guðrún.
PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita
að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu
skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir
mig að koma heim.
Nýjustu færslur
- The New Romantic (2018) | Official Trailer
- Ralph Breaks the Internet Trailer #2 (2018)
- GusGus - Don't Know How To Love (Official Video)
- Er Climax La la Land on Acid?
- 'You'll Love It' - Kanye West/Lil Pump Parody
- Marvels Daredevil: Season 3 | Date Announcement [HD] | Netflix
- THE SUPER Official Trailer (2018) Val Kilmer,
- THE GIRL IN THE SPIDER'S WEB - Official Trailer 2
- Marvel Studios' Captain Marvel - Official Trailer
- The Haunting of Hill House | Official Trailer [HD] | Netflix
- STAN & OLLIE Official Trailer (2018) Laurel And Hardy Movie
- Method Man - Take the Heat ft. Dr. Dre
- THE BALLAD OF BUSTER SCRUGGS Official Trailer (2018) James Fr...
- Marvels Daredevil: Season 3 | Teaser: Confessional
- SHAZAM "Superpowers" TV Spot Trailer (2018) DCEU
Athugasemdir
Ha ha ha!!! Frábær saga! Fjandinn, að hafa ekki fattað upp á þessu þegar maður var yngri ...
Maður gæti kannski notað þetta sosum ... hmm
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 15:19
Sniðug saga. Sýnir hvað sumir hlutir geta verið litlir þegar settir eru við hlið þeirra stóru.
Halla Rut , 13.7.2007 kl. 18:39
Doddi þú notar þetta einhvertíman
Halla rétt hjá þér og á hverjum degi lærum við eitthvað nýtt
Ómar Ingi, 13.7.2007 kl. 18:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.