14.1.2011 | 15:00
Gamli presturinn var orðin svo þreyttur á framhjáhalds-játningum sóknarbarna sinna
Gamli presturinn var orðin svo þreyttur á framhjáhalds-játningum sóknarbarna sinna í skriftarstólnum að sunnudag einn hélt hann þrumuræðu yfir þeim og sagði að hann þyldi ekki að heyra orðið framhjáhald einu sinni enn, annars myndi hann hætta störfum í sókninni.
En gamli presturinn var vinsæll og fólk vildi fyrir alla muni hafa hann áfram svo sóknarformaðurinn í samráði við gamla prestinn lét það boð út ganga að þeir sem vildu skrifta og játa framhjáhald myndu nota setninguna ,,ég datt á kirkjuveginum í staðinn.
Allt gekk sinn vanagang þar til gamli presturinn dó. Nýr prestur var auðvitað ráðinn í hans stað og eftir fyrsta daginn í skriftarstólnum orðaði hann það við sóknarformanninn að eitthvað þyrfti að laga gangveginn upp að kirkjunni því fólk segðist sífellt vera að detta. Sóknarformaðurinn fór að flissa, en þá sagði nýi presturinn: Þú ættir nú ekki að hlæja að þessu, konan þín hefur dottið þrisvar frá áramótum!
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Nýjustu færslur
- The New Romantic (2018) | Official Trailer
- Ralph Breaks the Internet Trailer #2 (2018)
- GusGus - Don't Know How To Love (Official Video)
- Er Climax La la Land on Acid?
- 'You'll Love It' - Kanye West/Lil Pump Parody
- Marvels Daredevil: Season 3 | Date Announcement [HD] | Netflix
- THE SUPER Official Trailer (2018) Val Kilmer,
- THE GIRL IN THE SPIDER'S WEB - Official Trailer 2
- Marvel Studios' Captain Marvel - Official Trailer
- The Haunting of Hill House | Official Trailer [HD] | Netflix
- STAN & OLLIE Official Trailer (2018) Laurel And Hardy Movie
- Method Man - Take the Heat ft. Dr. Dre
- THE BALLAD OF BUSTER SCRUGGS Official Trailer (2018) James Fr...
- Marvels Daredevil: Season 3 | Teaser: Confessional
- SHAZAM "Superpowers" TV Spot Trailer (2018) DCEU
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.