Sambíóin ásamt Þórhalli miðli og Stöð 2 vilja vekja athygli á því að fimmtudaginn 6. janúar verður sérstök fjáröflunarsýning í Sambíóunum Egilshöll til styrktar Sjónarhóli ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir.
Miðaverð er 1.500 kr og rennur allur ágóði sýningarinnar til Sjónarhóls en hægt er að kaupa miða á heimasíðu Sambíóanna sem og miðasölu Sambíóanna um land allt.
Herlegheitin hefjast klukkan 19:00 og mun Þórhallur miðill byrja kvöldið með skyggnilýsingu fyrir viðstadda en að henni lokinni verður nýjasta mynd Clint Eastwoods, Hereafter forsýnd.
SjónarhóllTil Sjónarhóls leita fjölskyldur með börn sín á ýmsum aldri og með margvísleg vandamál. Þar getur verið um að ræða vandamál tengd skóla, skort á stuðningsúrræðum, félagsleg vandamál og margt fleira. Þjónusta Sjónarhóls er fyrir allt landið og er mikil áhersla lögð á að hingað geti allir leitað. Þjónustan er endurgjaldslaus og ekki er þörf á tilvísun eða greiningu. Á Sjónarhóli starfa ráðgjafar með foreldrum á þeirra forsendum, með það að markmiði að leita lausna á vandamálunum og styðja við bakið á foreldrum á þeirri vegferð.
Hereafter - SýnishornHereafter er nýjasta mynd leikstjórans Clint Eastwood, en með aðalhlutverkið fer Matt Damon.Segir myndin frá George, venjulegum Bandaríkjamanni sem býr þó yfir óvenjulegum hæfileikum: að geta séð inn í framhaldslífið. Hefur hann vakið töluverða frægð fyrir hæfileika sinn, en vill hann þó helst geta losnað við miðilsgáfu sína og stundar því ekki lengur að tala við hina framliðnu í þjónustu annarra.Hinum megin á hnettinum lendir frönsk blaðakona, Marie, í hræðilegum og mannskæðum náttúruhamförum og rétt svo sleppur lifandi. Og þegar Marcus, ungur skólastrákur í London, missir manneskjuna sem er honum nánust fer af stað atburðarás sem mun leiða þessar þrjár manneskjur saman vegna trúar þeirra á það sem gerist eftir að þessu lífi lýkur. En hvaða áhrif munu þessir atburðir hafa á þetta fólk nú í lifanda lífi?
Dómar **** Roger Ebert Þetta er mynd fyrir gáfað fólk sem er náttúrulega forvitið um hvað gerist þegar yfir móðuna miklu er komið.**** The Hollywood Reporter Fróðleiksmolar Sarah Jane ONeill, sem leikur meðferðarsjúkling í myndinni, segist vera raunverulegur miðill og er þekkt víða um heim fyrir rannsóknir sínar á yfirnáttúrulegum fyrirbrigðum. Clint Eastwood sjálfur hrapaði eitt sinn í þjálfunarflugvél sinni þegar hann var í sjóhernum á yngri árum. Er talið að lífsreynsla hans þar hafi verið ákveðinn innblástur fyrir þessa mynd. Matt Damon mun næst birtast í Coen-vestranum True Grit, þar sem hann leikur á móti Jeff Bridges. Næsta mynd Clints Eastwood verður Hoover, sem segir sanna sögu J. Edgar Hoover, fyrrum yfirmanns FBI. Leonardo DiCaprio mun fara með hlutverk Hoovers í þeirri mynd og er von á henni í bíó árið 2012.
Nýjustu færslur
- The New Romantic (2018) | Official Trailer
- Ralph Breaks the Internet Trailer #2 (2018)
- GusGus - Don't Know How To Love (Official Video)
- Er Climax La la Land on Acid?
- 'You'll Love It' - Kanye West/Lil Pump Parody
- Marvels Daredevil: Season 3 | Date Announcement [HD] | Netflix
- THE SUPER Official Trailer (2018) Val Kilmer,
- THE GIRL IN THE SPIDER'S WEB - Official Trailer 2
- Marvel Studios' Captain Marvel - Official Trailer
- The Haunting of Hill House | Official Trailer [HD] | Netflix
- STAN & OLLIE Official Trailer (2018) Laurel And Hardy Movie
- Method Man - Take the Heat ft. Dr. Dre
- THE BALLAD OF BUSTER SCRUGGS Official Trailer (2018) James Fr...
- Marvels Daredevil: Season 3 | Teaser: Confessional
- SHAZAM "Superpowers" TV Spot Trailer (2018) DCEU
Athugasemdir
vel gert, sam-bíó
Emmcee, 5.1.2011 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.