Færsluflokkur: Vefurinn

Nonni 5 aur á sterum

Á eftirliti einn daginn, tók lögreglan í Kópavogi eftir allsberum Hafnfirðingi á röltinu á Reykjavíkurveginum.
Þeir stoppuðu hann og spurðu hvað í ósköpunum hann væri að gera á gangi, allsber, á leiðinni til Reykjavíkur.
"Það er löng saga," segir Hafnfirðingurinn þreytulega.
"Við erum ekkert að flýta okkur," segja lögregluþjónarnir.
"Sko, ég hitti geðveikt flotta gellu á Fjörukránni fyrir svona þremur tímum," byrjar Hafnfirðingurinn, "við byrjuðum að spjalla og ákváðum eftir nokkur glös að kíkja heim til hennar. Við byrjuðum að kela og knúsa og á endanum vorum við komin úr öllum fötunum. Þá lagðist hún á bakið og sagði: "Gakktu í bæinn!!" :)


Rjúpan

Lögfræðingur nokkur frá Reykjavík ákvað að skreppa á rjúpu. Hann fór upp í Borgarfjörð og fann góðan stað nokkuð fyrir frá sveitabæ. Hann var búinn að veiða nokkrar rjúpur og var að endað við að skjóta eina í viðbót og er að sækja hana er bóndi kemur að honum. Þeir heilsast og tala saman en eftir það segist bóndinn nú eiga þessa rjúpu. Það samþykkir lögfræðingurinn ekki og segist þekkja sinn rétt og hann hafi skotið hana og því eigi hann rjúpuna. Þá spyr bóndinn hvort að þeir eigi bara ekki að útkljá þetta með þriggja sparka reglunni, sem að er algengt hér í Borgarfirðinum. Lögfræðingurinn verður þá svolítið forvitinn og vill fá að vita meira. Bóndinn segir honum að fyrst sparki hann í lögfræðinginn þrisvar og síðan sparki lögfræðingurinn í hann þrisvar og svona gengur það þangað til að annar gefst upp. Lögfræðingurinn samþykkir það og segir bóndanum að sparka. Bóndinn byrjar að sparka í magann á honum og hnígur hann niður við það, næst sparkar hann í sköflunginn á honum, og er lögfræðingurinn orðinn svolítð sár en tekur samt við þriðja sparkinu sem að er mjög fast í punginn. Eftir að lögfræðingurinn er búinn að jafna sig segir hann: “Jæja nú er komið að mér” og býr sig til að sparka. Þá heyrist í bóndanum: “Nei, mér er andskotans sama um eina rjúpu,þú mátt bara eiga hana”.


Slúðrið

track

 

Dagbók ljóskunar!

Dagbók ljóskunar:

*Janúar: Skilaði trefli því hann var of þröngur.

*Febrúar: Var sagt upp á apótekinu því ég gat ekki skrifað verðmiða. Það er ekki mér að kenna flöskurnar passa ekki í vélina!

*Mars: Er rosalega ánægð með mig. Náði að klára púsl á 6 mánuðum sem ætti samkvæmt pakkanum að taka 4-6 ár. .

*Apríl: Festist alveg rosalega lengi í rúllutröppu út af því að rafmagnið fór ......

*Maí: Ætlaði á sjóskíði en varð að hætta við út af því að ég fann ekkert vatn með halla.

*Júní: Tapaði í sundkeppni í bringusundi, út af því að hinir keppendurnir svindluðu. Þær notuðu hendurnar.

*Júlí: Gleymdi bíllykklunum inni í bílnum og varð að bíða úti í svakalegu óveðri. Bílinn varð líka rennblautur út af því að blæjan var niðri.

*Ágúst: Gat ekki hringt í 112 af því að það vantar 12 takka.

*September: Ég ætla að reyna að finna út af hverju það stendur W á M&M namminu.

*Október: Fjandinn hvað það er erfitt að finna út úr þessu með M&M‘ið.

*Nóvember: Bakaði köku þar sem ég þurfti að skilja 12 egg. Varð þess vegna að fá lánaðar 12 skálar.

*Desember: Fór á ball þar sem maður þurfti að vera yfir 18. Það tók svolítinn tíma að safna saman hinum 17....


Girl Panic Teaser 3


Slúðrið

 


LAME


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband