Færsluflokkur: Vefurinn

Hjólið...... - Gamall 5 aur

Jói varð fyrir því láni að frændi hans í Ástralíu sendi honum glæsilegt fallegt reiðhjól. Jói var að sjálfsögðu afar ánægður með nýja hjólið sitt og áleit að slíkur kostagripur væri vandfundinn. Einn hængur var þó á. Með hjólinu fylgdi vaselín dolla og miði sem á stóð að ef það skildi fara að rigna þá þyrfti Jói að bera vaselín á hnakkinn, en hann var úr kengúrúskinni og myndi skemmast ef þetta væri ekki gert. Jóa fannst þetta nú bara lítið mál, settist á hjólið sitt og hjólaði af stað. Þar sem hjólið var svo frábært þá gleymdi hann sér alveg, var kominn langt út í sveit og það var að koma myrkur. Hann stoppaði því á næsta bóndabæ og bankaði á hurðina. Bóndinn kom til dyra og sagði að honum væri velkomið að vera í kvöldmat og gista en það væri þó ein regla í þessu húsi. Það er STRANGLEGA bannað að tala á meðan á kvöldverðinum stæði. Sá sem talar þarf að vaska upp. Jói leit inn í eldhúsið og sá þriggja mánaða uppvask, grænt og ógeðslegt. Ákvað hann á þeirri stundu að halda kjafti á meðan á matarhaldinu stæði. Kvöldmaturinn hófst og varð Jói var við að heimasætan var nú ansi fögur og byrjaði hún um leið að reyna við hann. Hann stóðst ekki mátið og átti við hana mök undir matarborðinu. Bóndinn var að sjálfsögðu reiður en sagði þó ekki neitt. Maturinn hélt áfram og tók Jói eftir því að yngri dóttir bóndans var nú ekki ófríð heldur og áhugi hennar á honum var ansi mikill. Hann átti við hana kynmök í horni eldhússins. Bóndinn var orðinn sjóðandi vondur en sagði þó ekki neitt, enda mikið uppvask í eldhúsinu. Maturinn hélt áfram og Jói tók eftir því að kona bóndans var nú ekki slæm. Hún vildi helst ekki vera útundan svo Jói skellti henni upp á borð og tók hana fyrir framan bóndann. Bóndinn var orðinn sjóðandi vondur, hissa og hálf grenjandi yfir dirfsku Jóa. Maturinn hélt áfram og enginn sagði neitt. Í því leit Jói út um gluggann og sá að það var að byrja að rigna, hann reif upp vaselín dolluna. Þá stóð bóndinn upp og öskraði:
"JÁ NEI NEI ÉG SKAL BARA VASKA UPP".

PIP Hjólbarðar....

Komið hefur í ljós að ein tiltekin gerð blöðrudekkja frá framleiðandanum “Small Dick – cheapdekk“ leka þótt þau séu ekki beint sprungin í tætlur.Nokkrir karlar sem eiga jeppa á yfirstærðardekkjum hyggjast nú leita réttar síns og lögsækja hjólbarðaverkstæðið sem setti leku hjólbarðana undir.Jafnframt er talið að ríkisábyrgð sé á ásetningu dekkjana og er samgönguráðherra ríkisstjórnarinnar með málið inni á borði hjá sér.Jeppaeigendurnir tóku reyndar sjálfir ákvörðun um að setja jeppana sína á stærri hjólbarða en telja sig engu að síður eiga endurkröfu á ríkið, þar sem það hafi verið sálræn upphífing fyrir þá að vera á stærri dekkjum en maðurinn við hliðina og hafi umskiptin jafnvel bjargað lífi þeirra og LIMI.Að þeirra mati flokkast hjólbarðaskiptin því undir heilbrigðismál og eru jeppaeigendurnir ósáttir við að samgönguráðherra fari með mál þeirra.Svo virðist sem tyggigúmmí hafi verið notað í hjólbarðana, sem hafa hlaupið upp í kúlur, og hafa gúmmíleifar jafnvel smurst inn í innri bretti og víðar um boddí jeppanna.Hlutaðeigandi hefur verið boðin frí jafnvægisstilling og mæling á loftþrýstingi ef einhver er fyrir leku hjólbarðana.Tökum höndum saman og förum í hópmálsókn.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband