Færsluflokkur: Tónlist

Party Zone á Rás 2 og Airwaves laugardaginn 17. október

Í þættinum á laugardag munum við hita upp fyrir Party Zone kvöldið á Airwaves hátíðinni sem fer fram á NASA sama kvöld.  Þar munu koma fram FM Belfast, Trentemöller, Jack Schidt og Kasper Björke.

 

Plötusnúður kvöldsins verður annað hvort Trentemöller eða Kasper Björke en það er ljóst að það verður alla vega danskt þema.

 

Trentemöller og Kasper Björke ætti ekki að þurfa að kynna fyrir Party Zone hlustendum enda báðir komið mikið við sögu í þáttunum undanfarin ár.

 

Að auki lætur svo múmía kvöldsins svo á sér kræla ásamt ýmsu öðru spennandi.

   

Eins og undanfarin ár þá mun dansþáttur þjóðarinnar vera hluti af Iceland Airwaves hátíðinni.

 

Í þetta skiptið mun Party Zone tengjast tveim kvöldum. Annars vegar Bugged Out partíinu á Jacobsen á föstudagskvöldinu þar sem JoJo De Freq o.fl. koma fram frá Bugged Out og frá Party Zone Casanova, BenSol og Frímann.

 

Það liggur því beinast við að kvöldið heiti Bugged Out Party Zone.

 

Aðal kvöldið okkar er síðan Party Zone Airwaves kvöldið á Nasa laugardagskvöldið á hátíðinni. Þar munu koma fram meðal annars FM Belfast, Jack Schidt, Kasper Björke og sjálfur Trentemöller.

 

Party Zone flutti fyrst inn Trentemöller í maí 2007 þegar hann spilaði á hreint út sagt frábæru og troðfullu Party Zone kvöldi á Gauk á Stöng sem að gleymist seint.  Seinna það ár kom hann svo aftur til Íslands og spilaði á Iceland Airwaves hátíðinni og þá á Listasafni Reykjavíkur.

 

Kasper Björke ætti ekki að þurfa að kynna mikið enda mikill Íslandsvinur hér á ferð sem hefur komið á Airwaves hátíðina undanfarinn ár fyrir utan öll hin partíin sem hann hefur komið til að spila á líka. Hann hefur svo unnið bæði með FM Belfast og Jack Schidt og því má búast við svakalegu stuði þegar allir þessir aðilar koma saman á einu stóru Party Zone kvöldi.

 

Upphitun verður að sjálfsögðu í þættinum á Rás 2 fram að hátíðinni þar sem aðalupphitunin verður í þættinum laugardaginn 17. október.

 

Það er nokkuð ljóst að þakið fer af Nasa og Jacobsen á Party Zone kvöldunum á Iceland Airwaves þetta árið.

   

Við minnum á facebook síðurnar fyrir bæði Airwaves kvöldin en þær má finna hér fyrir neðan.

 

http://www.facebook.com/event.php?eid=173653435249

 

http://www.facebook.com/event.php?eid=173445285844


Nujabes


PZK – Comme Ca (video)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband