Færsluflokkur: Bloggar

Mikilvæg heilsu og öryggisviðvörun

  Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út  viðvörun um mjög smitandi og hættuleg veiru, sem smitar viðkomandi við snertingu  og jafnvel með rafrænum hætti.

 

  Þessi veira er kölluð VINNA. Ef þú færð VINNU frá yfirmanni þínum, eða einhver annar  - EKKI SNERTA ÞAÐ!

 

  Þessi veira  þurrkar út einkalíf þitt fullkomlega.

  Ef þú kemst í snertingu við VINNU ættir þú strax að yfirgefa húsnæðið.

 

  Taktu tvo góða vini með þér í næstu vínbúð til að kaupa móteitur, annað eða bæði - Work Isoliting Neutralizer Extract (VÍN) og Bothersome Employer Elimination Rebooter (BJÓR).

  Taktu móteitrið oft og ítrekað eða þangað til að þú ert laus við öll einkenni af veirunni VINNA

 

  Þú ættir tafarlaust senda þessa viðvörun til fimm vina þinna, ef þú átt ekki fimm vini, ert þú nú þegar sýktur og veiran VINNA er að stjórna þínu lífi.

 

  FARIÐ VARLEGA

 


Þekkirðu hana ?

 

Eiginmaðurinn horfði stöðugt á sauðdrukkna konu sem sat á næsta borði og veifaði ginflöskunni óspart.


Þekkirðu hana? spyr eiginkonan.
Já stynur eiginmaðurinn, þetta er fyrrverandi konan mín. Hún byrjaði að drekka eftir að við skildum fyrir 7 árum og ég hef heyrt að það hafi ekki runnið af henni síðan.
Guð minn almáttugur segir eiginkonan, hverjum hefði getað dottið í hug að manneskja gæti fagnað svona lengi?


Gamli mótorinn!

Þegar þau giftu sig, hann áttræður og hún tvítug, var um fátt meira rætt í bænum.
Ári seinna mættu þau svo á spítalann því fyrsta barnið þeirra vildi í heiminn.
 
Ljósan sem tók á móti barninu óskaði gamla manninum til hamingju og sagði
"Mér þykir þetta afar merkilegt, Hvernig ferðu að þessu orðinn þetta fullorðinn?"
 
Sá gamli glotti og sagði "Maður verður að halda gamla mótornum gangandi"
 
Árið eftir mættu þau aftur á spítalann því nú var barn númer tvö að koma í heiminn.
Sama ljósan tók á móti því og auðvitað óskaði hún gamla manninum til hamingju og sagði:
 
"Þú ert ótrúlegur – Hvernig ferðu að þessu?"
 
Sá gamli glotti og sagði: "Maður verður að halda gamla mótornum gangandi"
 
Það brást ekki að þau birtust ári seinna því nú var þriðja barnið að koma í heiminn.


Enn tók sama ljósan móti og auðvitað óskaði hún gamla manninum til hamingju,
brosti og sagði:    "Ja - þú ert ekkert venjulegur!!!  – Hvernig ferðu að þessu?"
 
Sá gamli svaraði:
"Eins og ég hef sagt þér áður, verður maður að halda gamla mótornum gangandi"
 
Ljósan var ennþá brosandi, þegar hún klappaði honum á bakið og sagði:
"Líklega er komið að olíuskiptum hjá þér karlinn minn – þetta var svo svart"

 


Sambíóin ásamt Þórhalli miðli og Stöð 2 vilja vekja athygli á því að fimmtudaginn 6. janúar verður sérstök fjáröflunarsýning í Sambíóunum Egilshöll til styrktar Sjónarhóli –

Sambíóin ásamt Þórhalli miðli og Stöð 2 vilja vekja athygli á því að fimmtudaginn 6. janúar verður sérstök fjáröflunarsýning í Sambíóunum Egilshöll til styrktar Sjónarhóli – ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir.

 Miðaverð er 1.500 kr og rennur allur ágóði sýningarinnar til Sjónarhóls en hægt er að kaupa miða á heimasíðu Sambíóanna sem og miðasölu Sambíóanna um land allt.

Herlegheitin hefjast klukkan 19:00 og mun Þórhallur miðill byrja kvöldið með skyggnilýsingu fyrir viðstadda en að henni lokinni verður nýjasta mynd Clint Eastwoods, Hereafter forsýnd.

 

 

 

 SjónarhóllTil Sjónarhóls leita fjölskyldur með börn sín á ýmsum aldri og með margvísleg vandamál.  Þar getur verið um að ræða vandamál tengd skóla, skort á stuðningsúrræðum, félagsleg vandamál og margt fleira. Þjónusta Sjónarhóls er fyrir allt landið og er mikil áhersla lögð á að hingað geti allir leitað. Þjónustan er endurgjaldslaus og ekki er þörf á tilvísun eða greiningu.  Á Sjónarhóli starfa ráðgjafar með foreldrum á þeirra forsendum, með það að markmiði að leita lausna á vandamálunum og styðja við bakið á foreldrum á þeirri vegferð.

 

 

Hereafter - SýnishornHereafter er nýjasta mynd leikstjórans Clint Eastwood, en með aðalhlutverkið fer Matt Damon.Segir myndin frá George, venjulegum Bandaríkjamanni sem býr þó yfir óvenjulegum hæfileikum: að geta séð inn í framhaldslífið. Hefur hann vakið töluverða frægð fyrir hæfileika sinn, en vill hann þó helst geta losnað við miðilsgáfu sína og stundar því  ekki lengur að tala við hina framliðnu í þjónustu annarra.Hinum megin á hnettinum lendir frönsk blaðakona, Marie, í hræðilegum og mannskæðum náttúruhamförum og rétt svo sleppur lifandi. Og þegar Marcus, ungur skólastrákur í London, missir manneskjuna sem er honum nánust fer af stað atburðarás sem mun leiða þessar þrjár manneskjur saman vegna trúar þeirra á það sem gerist eftir að þessu lífi lýkur. En hvaða áhrif munu þessir atburðir hafa á þetta fólk nú í lifanda lífi?

Dómar **** Roger Ebert – „Þetta er mynd fyrir gáfað fólk sem er náttúrulega forvitið um hvað gerist þegar yfir móðuna miklu er komið.“**** The Hollywood Reporter   Fróðleiksmolar• Sarah Jane O‘Neill, sem leikur meðferðarsjúkling í myndinni, segist vera raunverulegur miðill og er þekkt víða um heim fyrir rannsóknir sínar á yfirnáttúrulegum fyrirbrigðum.• Clint Eastwood sjálfur hrapaði eitt sinn í þjálfunarflugvél sinni þegar hann var í sjóhernum á yngri árum. Er talið að lífsreynsla hans þar hafi verið ákveðinn innblástur fyrir þessa mynd.• Matt Damon mun næst birtast í Coen-vestranum True Grit, þar sem hann leikur á móti Jeff Bridges.• Næsta mynd Clints Eastwood verður Hoover, sem segir sanna sögu J. Edgar Hoover, fyrrum yfirmanns FBI. Leonardo DiCaprio mun fara með hlutverk Hoovers í þeirri mynd og er von á henni í bíó árið 2012. 

 

 


The Other Woman

17

The Other Woman

Release Date: February 4, 2011 (limited)
Studio: IFC Films
Director: Don Roos
Screenwriter: Don Roos
Starring: Natalie Portman, Scott Cohen, Charlie Tahan, Lisa Kudrow
Genre: Drama
MPAA Rating: Not Available
Official Website: IFCFilms.com

Plot Summary: The radiant Natalie Portman (”Closer,” “Black Swan”) lights up the screen in this frank, funny, and heart-wrenching adaptation of bestselling author Ayelet Waldman’s novel about life, loss, and family directed by Don Roos (”The Opposite of Sex,” “Happy Endings”).

Emilia (Portman) is a Harvard law school graduate and a newlywed, having just married Jack (Scott Cohen, “The Understudy”), a high-powered New York lawyer, who was her boss – and married – when she began working at his law firm. Unfortunately, her life takes an unexpected turn when Jack and Emilia lose their newborn daughter. Emilia struggles through her grief to connect with her new stepson William (Charlie Tahan, “I Am Legend”), but is finding it hard to connect with this precocious child. Perhaps the most difficult obstacle of all for Emilia is trying to cope with the constant interferences of her husband’s angry, jealous ex-wife, Carolyn (Lisa Kudrow).


Gleðilegt Nýtt PIXAR ár


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband