Tveir eldri og reyndari arkitektar Örnólfur Hall og Guðmundur Kr Guðmundsson hafa gert alvarlegar athugasemdir við að gluggarammar í tónlistarhöllinni Hörpu eru ryðgaðir.

 Með verkviti skelegg‘og skörpuþeir skilgreindu ógnina snörpuog töldu þörf í,að taka á því,að talsvert er riðið í Hörpu

Nonni 5 aur

Ung og falleg kona sem var á leið heim úr verslunarferð í útlöndum spurði prestinn sem sat við hliðina á henni í vélinni hvort hann gæti mögulega gert sér greiða. Að sjálfsögðu barnið mitt sagði klerkurinn, hvað get ég gert fyrir þig? Sko, ég keypti rándýra hárþurrku í útlöndum og ég er hrædd um að ég verði stoppuð í tollinum sagði konan. Er nokkur leið að þú farir með hárblásarann í gegnum tollinn. Þú gætir til að mynda geymt hann undir hempunni.
 
 Ég vil endilega aðstoða þig vina mín, en ég mun hins vegar ekki ljúga fyrir þig sagði presturinn.
Eftir að vélin var lent og þau komu að tollinum fór presturinn á undan. Tollvörðurinn stöðvaði prestinn og spurði hann hvort hann væri með eitthvað sem gera þyrfti grein fyrir. Ég er ekki með neitt slíkt frá mitti og upp úr sagði presturinn. Hvað ertu með neðan mittis? spurði tollvörðurinn. Þar er ég með magnað tæki sem er hannað til að gagnast konum, en er enn sem komið er ónotað.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband